Listamenn

Orri Huginn Ágústsson


    Orri Huginn Ágústsson lauk BFA gráðu frá leiklistardeild LHÍ vorið 2005 en fyrsta hlutverk hans í atvinnuleikhúsi var hlutverk ólafs Kárasonar Lljósvíkings í opnunarverki Borgarleikhússins, Ljós heimsins, árið 1989. Fyrsta verkefni Orra eftir útskrift var í söngleiknum Kabarett á vegum Leikhópsins á senunni. Orri hefur starfað með fleiri sjálfstæðum hópum og er einn af stofnendum Hins lifandi leikhúss og lék t.a.m. í sýningunni Eilíf hamingja á vegum hópsins sem sýnd var í Borgarleikhúsinu en einnig í Maxim Gorkí leikhúsinu í Berlín. Orri lék einnig og söng hlutverk Annasar sem sett var upp á Stóra sviðinu um jólin 2007. Orri hefur einnig leikið í sjónvarpi, t.d. í sjónvarpsþáttaröðinni Pressan.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Eilíf óhamingja Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica