Beint í leiðarkerfi vefsins.
Bjarni Haukur Þórsson útskrifaðist frá The American Academy of Dramatic Arts í New York árið 1995 og lék með The Willow Cabin Theater Group á Off Broadway í um ár eftir útskrift, ásamt því að leika og framleiða sýninguna Standing On My Knees í Westbeth Theater í New York . Við heimkomu leikstýrði hann Master Class eftir Terrence McNally í Íslensku óperunni . Ári síðar leikstýrði Bjarni Trainspotting með Ingvari E . Sigurðssyni í aðalhlutverki í Loftkastalanum . Árið 1998 lék Bjarni hlutverk Hellisbúans í Íslensku óperunni og lék þá sýningu í um þrjú ár . Árið 2007 frumsýndi Bjarni hinn geysivinsæla einleik Pabbann sem sýndur var í um tvö ár hérlendis . Alls eru um fimmtán erlendar uppsetningar á Pabbanum á fjölunum víðs vegar um heiminn . Bjarni hefur leikstýrt fjölda leikverka á Íslandi sem og erlendis og má þar nefna; Grease í Göta Lejon í Stockhólmi, Hellisbúann í Chat Noir í Osló, The Sunshine Boy’s í China Teater í Stockhólmi og Pabbann í Chat Noir í Osló . Sem framleiðandi hefur Bjarni framleitt yfir fjörtíu sýningar í sjö löndum . Einnig hefur Bjarni skrifað og leikstýrt fyrir sjónvarpsstöðvar á Íslandi, Noregi og Svíþjóð . Afinn er fyrsta höfundar- og leikstjórnar verkefni Bjarna í Borgarleikhúsinu.