Listamenn

Margrét Helga Jóhannsdóttir


    Margrét Helga Jóhannsdóttir útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1967. Margrét lék fyrst nokkur hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu, m.a. ekkjuna í Zorba og var samhliða í Leiksmiðjunni og lék þar t.d. Steinunni í Galdra-Lofti. Árið 1972 fór hún yfir til LR í Iðnó og hefur verið hjá Leikfélaginu síðan. Þar lék hún m.a. Uglu í Atómstöðinni og svo komu Salka Valka, Straumrof, Gísl og Dagur vonar. Í Borgarleikhúsinu hefur Margrét leikið í fjölda eftirminnilegra sýninga, þær eru m.a. einleikurinn Sigrún Ástrós, Elín Helena, Djöflarnir, Ljón í síðbuxum, Chicago, Öndvegiskonur, Fegurðardrottningin frá Línakri, Fólkið í blokkinni, Óskar og bleikklædda konan og Fjölskyldan. Hún hefur leikið í ótal útvarpsleikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Margrét hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) Leikarar
    Gauragangur Leikarar
    Fólkið í blokkinni Leikarar
    Óskar og bleikklædda konan Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica