Listamenn

Linda Ásgeirsdóttir


    Linda Ásgeirsdóttir lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands 1998 en áður hafði hún lokið 7. stigi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík. Linda hefur leikið með ýmsum leikhópum m.a. Möguleikhúsinu og Draumasmiðjunni og var um hríð félagi í Spaugstofunni. Linda fór með hlutverk Berglindar í Leitum að ungri stúlku í Iðnó. Í Þjóðleikhúsinu lék Linda í Rent, Sollu stirðu í Latabæ, Susan í Vér morðingjar, þernu Roxönu í Cyrano frá Bergerac, ýmis hlutverk í Syngjandi í rigningunni, Lóu í Bláa hnettinum, Sjógirl í Strompleik, Önnu Jónu í Jóni Oddi og Jóni Bjarna og Fjólu í Rakstri. Linda lék einnig í söngleiknum Með næstum allt á hreinu á Broadway og er Skoppa í tvíeykinu Skoppa og Skrítla sem hafa flakkað heimshorna á milli síðustu misseri. Linda lék einnig í Fló á skinni á Stóra sviðinu í vetur.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Skoppa og Skrítla á tímaflakki Leikarar
    Söngvaseiður Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica