Ragnhildur Gísladóttir
Ragnhildur Gísladóttir lauk prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands vorið 2008. Hún hefur starfað sem tónlistarmaður um árabil og stofnaði fyrstu íslensku kvennarokkhljómsveitina, Grýlurnar, árið 1981, lék í hljómsveitinni Stuðmönnum frá árinu 1984-2005 og er höfundur efnis á fjölda hljómdiska beggja hljómsveita. Meðal tónsmíða á öðrum hljómdiskum sem hún hefur átt þátt í og samið má nefna, Rombigy (1991), Ragga & the Jack Magic Orchestra (1997), Human Body Orchestra (1998), Baby (2000) og Bergmál (2005). Auk þess hefur Ragnhildur samið tónlist við kvikmyndina Veðramót (2007) eftir Guðnýju Halldórsdóttur og stuttmyndina Naglinn (2008) eftir Benedikt Erlingsson. Á árunum 2001-2006 vann Ragnhildur með japanska sanukite steinslagverksleikaranum Stomu Yamash´ta við upptökur og flutning á tónlist þeirra beggja í Japan. Stomu Yamash´ta lék með Ragnhildi á Bergmálsdisknum og var það verk flutt á Listahátíð 2005 í Reykjavík og á heimssýningunni Expo 2005 í Japan. Árið 2008 samdi Ragnhildur tónlist við leikritið Sumarljós eftir Jón Kalman.
Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu