Beint í leiðarkerfi vefsins.
Kristbjörg Kjeld útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1958 og hefur leikið fjölda burðarhlutverka hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur, leikhópum og í kvikmyndum. Af minnisstæðum hlutverkum Kristbjargar má nefna Alison í Horfðu reiður um öxl, Ragnheiði Brynjólfsdóttur í Í Skálholti, Ingunni í Pétri Gaut, Steinunni í Galdra-Lofti, Normu í Vér morðingjar, Steinunni í Svartfugli, Góneríl í Lé konungi, Ingunni í Stundarfriði, Vernhörðu í Heimili Vernhörðu Alba, Kate Keller í Allir synir mínir, Gunnsu í Bjarti og Rauðsmýrarmaddömuna í Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki, Vronskí greifafrú í Önnu Kareninu, Lilju í Græna landinu, Petrovnu í Svartri mjólk og frú Kilbride í Mýrarljósi. Á allra síðustu árum hefur Kristbjörg einnig vakið athygli fyrir hlutverk sín í Utan gátta, Hænuungunum, Heddu Gabler og Svörtum hundi. Kristbjörg hefur leikstýrt nokkrum sýningum í Þjóðleikhúsinu, meðal annars Rympu á ruslahaugnum, Herbergi 213 og Ástarsögu aldarinnar. Hún var einn af stofnendum leikhópsins Grímu og lék með honum Estelle í Læstum dyrum, fór með hlutverk Ranévskaju í Kirsuberjagarðinum hjá Frú Emilíu og Kolbrúnar í Einhver í dyrunum hjá LR. Kristbjörg hefur leikið töluvert í kvikmyndum. Meðal þeirra eru 79 af stöðinni, Kristnihald undir Jökli, Fíaskó, Mávahlátur, Reykjavík Guesthouse, Hafið, Kaldaljós og Mamma Gógó. Kristbjörg hlaut Grímuna fyrir leik sinn í Hænuungunum og var tilnefnd fyrir Halta Billa, Mýrarljós og Heddu Gabler. Kristbjörg hlaut Menningarverðlaun DV í leiklist fyrir leik sinn í Taktu lagið Lóa. Hún hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2007 og Edduverðlaunin fyrir Mömmu Gógó, Kaldaljós og Mávahlátur. Hún hlaut verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni Polar Lights í Múrmansk í Rússlandi fyrir hlutverk sitt í Mömmu Gógó.
| Fanný & Alexander | Leikarar |