Sverrir Þór Sverrisson

Sverrir Þór Sverrisson er leikari, skemmtikraftur og dagskrárgerðarmaður. Hann hefur leikið í fjölda bíómynda, sjónvarpsþátta og leikrita. Sverrir lék í Fame í uppsetningu 3 Sagas, Kalla á þakinu og Gosa í Borgarleikhúsinu og nú síðast Algjör sveppur í Íslensku óperunni. Meðal sjónvarpsþátta sem Sverrir hefur tekið þátt í má nefna Popp Tíví, Svínasúpuna, Stelpurnar og Ríkið. Einnig hefur Sverrir leikið í bíómyndunum Astrópíu og Algjör Sveppi - Leitin að Villa auk fjölda sjónvarpsauglýsinga.

Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

Gauragangur Leikari
Gosi Leikari