Listamenn

Jóhanna Vigdís Arnardóttir


    Jóhanna Vigdís Arnardóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands vorið 1999. Auk leikaramenntunar hefur hún lokið burtfararprófi í söng og píanóleik frá Tónlistarskóla Garðabæjar. Jóhanna Vigdís hefur starfað hjá Borgarleikhúsinu frá 1998. Hún hefur farið með fjölda hlutverka og haldið tónleika í Borgarleikhúsinu auk þess sem hún hefur sungið inn á hljómplötur. Af eftirminnilegri hlutverkum Jóhönnu Vigdísar má nefna hlutverk hennar í Píkusögum, Kysstu mig Kata, Lé Konungi, Kryddlegnum hjörtum, Boðorðunum 9, Fjölskyldunni, Enron og Ofviðrinu. Jóhanna var tilnefnd til Grímunnar fyrir hlutverk sitt í Chicago og Fjölskyldunni. Jóhanna Vigdís hlaut styrk úr Minningarsjóði Frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2000. Hún hefur einnig leikið í kvikmyndum og sjónvarpi m.a. Rétti, Allir litir hafsins eru kaldir og Áramótaskaupum Sjónvarpsins.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Söngvaseiður Leikarar
    Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) Leikarar
    Gauragangur Leikarar
    Milljarðamærin snýr aftur Leikarar
    Fólkið í blokkinni Leikarar
    Ofviðrið Leikarar
    Enron Leikarar
    Galdrakarlinn í Oz Leikarar
    Fanný & Alexander Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica