Listamenn

Ingvar E. Sigurðsson


    Ingvar E. Sigurðsson útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1990 og hefur síðan sett mark sitt á íslenskt leikhúslíf. Hann hefur víðtæka reynslu í leikhúsum hérlendis sem erlendis og hefur farið með hátt á þriðja tug hlutverka í íslenskum og erlendum kvikmyndum auk hlutverka í sjónvarpsþáttum og stuttmyndum. Ingvar hefur hlotið mörg verðlaun og viðurkenningar fyrir leik sinn bæði á sviði sem á hvíta tjaldinu en hann hefur hneppt fimm Edduverðlaun þ.á.m. fyrir túlkun sína á Erlendi í Mýrinni og hlaut hann Grímuverðlaun fyrir titilhlutverkið í Pétri Gaut árið 2006. Ingvar er einn af stofnendum Vesturports og hefur tekið þátt í mörgum verkefnum þeirra þ.á.m. Brim, Hamskiptunum og samstarfssýningunum;  Rómeó og Júlíu og Woyzeck hér í Borgarleikhúsinu en báðar þessar sýningar hafa verið sýndar í London og farið á leikferðir víða um heim.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Djúpið Leikarar
    Rústað Leikarar
    Rómeó og Júlia Leikarar
    Ofviðrið Leikarar
    Klúbburinn Höfundur
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica