Listamenn

Hrefna Hallgrímsdóttir


    Hrefna Hallgrímsdóttir lauk leiklistarnámi frá University of West Florida árið 1997, en hún hafði áður stundað ballettnám í 11 ár við Listdansskóla Þjóðleikhússins/Íslands. Hún starfaði um skeið sem dansari og leikari í New York en hefur á undanförnum árum leikið og dansað í ýmsum sýningum á Íslandi. Má þar nefna sýningar Möguleikhússins á Snuðru og Tuðru, Langafa prakkara, Lómu og Jónas týnir jólunum. Hún lék í Hróa Hetti sem sýnt var í Húsdýragarðinum, í SOS Kabarett í Loftkastalanum og í Hnetunni, Leikhússporti og Sniglaveislunni hjá Leikfélagi Íslands. Hún hefur einnig starfað með Dansleikhúsi með Ekka frá upphafi. Hrefna hefur leikið bæði í útvarpi og sjónvarpi, og starfar sem leiklistar- og danskennari í Kramhúsinu og Sönglist. Hrefna lék einnig í Syngjandi í rigningunni og Leitinni að jólunum í Þjóðleikhúsinu sem og í sýningunum um Skoppu og Skrítlu sem hún skrifar einnig handritið að.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Skoppa og Skrítla á tímaflakki Höfundur
    Skoppa og Skrítla á tímaflakki Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica