Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hilmir Snær Guðnason lauk námi við Leiklistarskóla Íslands árið 1994. Hilmir er nú fastráðinn við Borgarleikhúsið. Hann hefur farið með fjölmörg veigamikil hlutverk í leikhúsum landsins, meðal sýninga eru Fávitinn, Þrjár systur, Hamlet, Listaverkið, Veislan, Með fulla vasa af grjóti og Ríkarður þriðji. Hann lék í söngleikjunum Hárið og Rocky Horror hjá Flugfélaginu Lofti og Beðið eftir Godot, Amadeus, Milljarðamærin snýr aftur, Dúfunum, Faust og Strýhærða Pétri í Borgarleikhúsinu. Hann lék m.a. í kvikmyndunum Agnesi, 101 Reykjavík, Englum alheimsins, Hafinu og hann fékk Edduna fyrir leik sinn í Mávahlátri. Hilmir hefur einnig leikið í þýskum og breskum kvikmyndum. Meðal leikstjórnarverkefna Hilmis eru Krákuhöllin hjá Nemendaleikhúsinu, Abigail heldur partí í Borgarleikhúsinu, Töfraflautan í Íslensku óperunni, Hinn fullkomni maður á vegum Draumasmiðjunnar, Gullna hliðið í Þjóðleikhúsinu, Dagur vonar og Fjölskyldan í Borgarleikhúsinu. Hilmir Snær fékk Menningarverðlaun DV í leiklist fyrir Hamlet, Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Veislan og Ég er mín eigin kona og Grímuverðlaun árið 2010 fyrir leikstjórn sína á Fjölskyldunni. Hilmir hlaut styrk úr Minningarsjóði Frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2000.
| Dúfurnar | Leikarar | |
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Leikstjórn | |
| Faust | Leikarar | |
| Milljarðamærin snýr aftur | Leikarar | |
| Ofviðrið | Leikarar | |
| Strýhærði Pétur | Leikarar | |
| Kirsuberjagarðurinn | Leikstjórn |