Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hanna María Karlsdóttir lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1978. Hanna María hefur verið fastráðin hjá Leikfélagi Reykjavíkur í 32 ár og sat í stjórn félagsins 2001-2003. Hún hefur leikið yfir 70 hlutverk á ferlinum m.a. í Jóa, Djöflaeyjunni, Þrúgum reiðinnar, Dómínó, Mávahlátri, Öndvegiskonum, Söngleiknum Ást, Fjölskyldunni, Faust og Ofviðrinu. Hún dansaði einnig hlutverk Nönu í Through Nana‘s eyes, með Íslenska dansflokknum. Hanna María leikstýrði einleiknum Sigrúnu Ástrós. Hjá LA lék hún í Stálblómum og Tobacco Road. Af fjölda kvikmynda má nefna Gullsand, Einkalíf, Agnesi, Börn, Sveitabrúðkaup, Kóngaveg og 101 Reykjavík en Hanna María var tilnefnd til Edduverðlauna fyrir hlutverk sitt í þeirri mynd og einnig fyrir hlutverk sitt í Sveitabrúðkaupi. Hanna María hlaut Grímuna sem besta leikkona í aðalhlutverki árið 2005 fyrir hlutverk sitt í Héra Hérasyni og tilnefningu fyrir hlutverk sitt í Degi vonar.
| Söngvaseiður | Leikarar | |
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Leikarar | |
| Faust | Leikarar | |
| Gauragangur | Leikarar | |
| Milljarðamærin snýr aftur | Leikarar | |
| Ofviðrið | Leikarar | |
| Gyllti drekinn | Leikarar |