Listamenn

Hallgrímur Ólafsson


    Hallgrímur Ólafsson útskrifaðist frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007 og var fastráðinn leikari hjá Leikfélagi Akureyrar strax við útskrift en vorið 2008 gerðist hann fastráðinn leikari hjá Borgarleikhúsinu. Hjá Leikfélagi Akureyrar lék Hallgrímur í Óvitum og fór með ýmis hlutverk í Ökutímum ásamt því að leika í Fló á skinni. Hjá Borgarleikhúsinu hefur Hallgrímur m.a. leikið í Fólkinu í blokkinni, Söngvaseið, Milljarðamærin snýr aftur, Fjölskyldunni, Gauragangi, Fólkinu í kjallaranum, Elsku barni og Strýhærða Pétri. Á undanförnum árum hefur hann talsett fjölda teiknimynda, bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndahús. Hallgrímur hefur einnig starfað sem tónlistarmaður frá unga aldri.

     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica