Listamenn

Halldóra Geirharðsdóttir


    Halldóra Geirharðsdóttir lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1995, réð sig til Borgarleikhússins ári síðar og hefur verið fastráðin við húsið allar götur síðan. Meðal eftirminnilegra hlutverka Halldóru hjá Borgarleikhúsinu eru Fíflið í Lé konungi, Hermíone drottning í Vetrarævintýri Shakespeares og Sigurlína í Sölku Völku. Einnig lék hún í Jesú litla, Góðum Íslendingum, Elsku barni og Dúfunum en fyrir það síðastnefnda hlaut hún tilnefningu til Grímunnar auk þess sem hún hlaut Grímuverðlaun ásamt meðhöfundum sínum fyrir Jesú litla sem leikrit ársins. Halldóra hefur auk þess leikstýrt einu verki í Borgarleikhúsinu, sýningunni Jóni og Hólmfríði árið 2002. Halldóra hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, m.a. Dollý í Djöflaeyjunni og Dagnýju í Englum alheimsins. Halldóra hefur líka komið fram sem trúðurinn Barbara og trúbadorinn Smári í félagi við vin sinn Hannes sem leikinn er af Ólafíu Hrönn Jónsdóttur. Halldóra hlaut styrk úr Minningarsjóði Frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 1997 og hlaut Menningarverðlaun DV árið 2010 fyrir sýninguna Jesús Litli.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Jesús litli Leikarar
    Dauðasyndirnar Höfundur
    Dauðasyndirnar Leikarar
    Góðir íslendingar Leikarar
    Dúfurnar Leikarar
    Enron Leikarar
    Elsku barn Leikarar
    Strýhærði Pétur Leikarar
    Zombíljóðin Höfundur
    Zombíljóðin Leikstjórn
    Zombíljóðin Leikarar
    Fanný & Alexander Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica