Beint í leiðarkerfi vefsins.
Atli Þór Albertsson útskrifaðist frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2005. Síðan hefur hann leikið fjölda hlutaverka á leiksviði, í sjónvarpi og útvarpi. Meðal leiksýninga sem Atli hefur leikið í frá útskrift eru Kabarett í Íslensku Óperunni og barnasöngleikurinn Abbababb í uppsetningu Á senunni í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Atli hefur starfað mikið í sjónvarpi en hann var hluti af Strákunum sem naut gríðarlegra vinsælda á Stöð 2. Þá hefur hann skapað fjölda eftirminnilegra persóna sem sjónvarpsáhorfendur þekkja glöggt, svo sem Alla Atlas og Adda Idol. Atli hefur leikið í fjölda útvarpsleikrita og stýrt útvarpsþáttum á Rás 2, nú í vetur þættinum frá A-J. Atli leikur hlutverk Miroslaw í Fló á skinni á Stóra sviði Borgarleikhússins. Atli hefur einnig skrifað og leikstýrt áhugasýningum, þar á meðal The Commitments árið 2007 og kennt leiklist í framhaldsskólum.
| Milljarðamærin snýr aftur | Leikarar |