Listamenn

Halldór Gylfason


    Halldór Gylfason útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997. Hann réði sig til Borgarleikhússins árið 1998 og hefur verið þar allar götur síðan. Telja hlutverk hans í húsinu nú á fjórða tug. Meðal eftirminnilegra hlutverka Halldórs í Borgarleikhúsinu eru Grettir úr samnefndum söngleik, Þráinn í And Björk, of course..., Hänschen í Vorið vaknar, Ósvald í Lé konungi, Skolli í Gosa, Lucky í Beðið eftir Godot, Haddi í Fólkinu í blokkinni og hlutverk hans í Góðum Íslendingum, Ofviðrinu, Strýhærða Pétri og Galdrakarlinum í Oz. Einnig lék Halldór norðurljós og dögg í norskum skógi í Búasögu. Halldór hefur sömuleiðis komið víða við í sjónvarpi, hann hefur leikið í áramótaskaupum og er einn leikara og handritshöfunda Sigtisins sem sýnt var á Skjá einum. Halldór er líka tónlistarmaður og meðlimur í hljómsveitinni Geirfuglunum.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Góðir íslendingar Leikarar
    Fólkið í blokkinni Leikarar
    Gosi Leikarar
    Ofviðrið Leikarar
    Enron Leikarar
    Strýhærði Pétur Leikarar
    Galdrakarlinn í Oz Leikarar
    Gyllti drekinn Leikarar
    Fanný & Alexander Leikarar
    Hótel Volkswagen Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica