Listamenn

Guðjón Davíð Karlsson


    Guðjón Davíð Karlsson útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2005. Guðjón tók þátt í nokkrum söngleikjum fyrir útskrift og má þar nefna Grease sem sýndur var í Borgarleikhúsinu 2003, Hárið í Austurbæ 2004, Kabarett í Íslensku óperunni 2005. Hann var fastráðinn við Leikfélag Akureyrar strax eftir útskrift og var einn helsti burðarás leikhússins þar til hann var ráðinn til Borgarleikhússins árið 2008. Hjá LA fór Guðjón með fjölmörg hlutverk, m. a. Markó í Pakkinu á móti, Bjarna í Fullkomnu Brúðkaupi, Baldur í Litlu hryllingsbúðinni, Díma í Maríubjöllunni, Ralf í Herra Kolbert, Davey í Svörtum ketti og ýmis hlutverk í Ökutímum. Guðjón fer með stórt hlutverk í kvikmyndunum um Sveppa og hann var einnig umsjónarmaður skemmtiþáttarins Hringekjunnar í Sjónvarpinu. Guðjón Davíð er fastráðinn leikari Borgarleikhússins og hefur leikið í Fló á skinni, Fólkinu í blokkinni, Söngvaseið, Heima er best, Gauragangi, Fólkinu í kjallaranum, Ofviðrinu og Nei, ráðherra.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Heima er best Leikarar
    Söngvaseiður Leikarar
    Gauragangur Leikarar
    Fólkið í blokkinni Leikarar
    Ökutímar Leikarar
    Ofviðrið Leikarar
    Fólkið í kjallaranum Leikarar
    Nei, ráðherra! Leikarar
    Eldfærin Höfundur
    Eldfærin Tónlist
    Eldfærin Leikarar
    Kirsuberjagarðurinn Leikarar
    Eldhaf Leikarar
    Gói og baunagrasið Leikgerð
    Gói og baunagrasið Tónlist
    Gói og baunagrasið Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica