Listamenn

Dóra Jóhannsdóttir


    Dóra Jóhannsdóttir útskrifaðist með BFA gráðu í leiklist frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2006. Dóra er einn stofnenda leikhópsins Ég og vinir mínir og setti ásamt þeim hópi upp sýningarnar Húmanimal og Verði þér að góðu. Dóra lék mest í Þjóðleikhúsinu fyrstu árin eftir útskrift. Þar lék hún m.a í sýningunum Óhappi!, Baðstofunni, Þeim ljóta og eitt af aðalhlutverkunum í söngleiknum Legi eftir Hugleik Dagsson. Í Borgarleikhúsinu hefur hún leikið m.a í sýningunum Heima er best, Rautt brennur fyrir og Góðum Íslendingum. Dóra hefur einnig leikið í ýmsum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Rautt brennur fyrir Leikarar
    Góðir íslendingar Leikarar
    Heima er best Leikarar
    Gauragangur Leikarar
    Gyllti drekinn Leikarar
    Hótel Volkswagen Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica