Listamenn

Kristjana Stefánsdóttir


    Kristjana Stefánsdóttir lauk með láði námi í djasssöng frá Konunglega Listaháskólanum í Haag í Hollandi vorið 2000 undir handleiðslu Rachel Gold, en áður hafði hún lokið söngnámi við Söngskólann í Reykjavík og sótt einkatíma hjá Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Kristjana hefur einnig lagt stund á nám í söngtækni hjá Cathrine Sadolin í Kaupmannahöfn. Fyrsta geislaplata Kristjönu Ég verð heima um jólin með Kvartett Kristjönu Stefáns kom út árið 1996, en hún hefur síðan hljóðritað bæði í eigin nafni og sem gestasöngvari og komið reglulega fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónleikum. Sólóplatan Kristjana frá árinu 2001 (gefin út í Japan 2005) var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og einnig Fagra veröld 2002 þar sem hún söng lög Sunnu Gunnlaugsdóttur við ljóð ýmissa höfunda. Kristjana hefur haldið tónleika víða, m.a. í Hollandi, Þýskalandi, Englandi, Finnlandi og Japan. Kristjana sá um tónlist, tónlistarstjórn og lék í sýningunni Jesú litla árið 2009 og var tilnefnd til Grímuverðlauna fyrir tónlistina í sýningunni.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Jesús litli Leikarar
    Jesús litli Tónlist
    Dauðasyndirnar Tónlistarstjórn
    Galdrakarlinn í Oz Tónlistarstjórn
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica