Listamenn

Snorri Freyr Hilmarsson


    Snorri Freyr Hilmarsson lauk námi í leikmyndahönnun frá Tækniháskólanum í Birmingham 1989. Hlaut Linsbury Price For Stage Design sama ár og átti samvinnu við Théâtre de Complicité í London. Hann hefur gert fjölda leikmynda fyrir kvikmyndir, sjónvarp og leikhús. Meðal verkefna hans í sjónvarpi eru Sigla himinfley, Jörundur hundadagakonungur, stuttmyndirnar Óskir skara, Fiskur og Besti vinur kvenna, Lazytown (BAFTA-verðlaun 2007). Drög að svínasteik sem var samvinnuverkefni EGG-leikhússins og Þjóðleikhússins 1993, Rommí og Stjörnur á morgunhimni í Iðnó, Tobacco Road hjá LA. Fyrir Borgarleikhúsið: Öndvegiskonur, Blíðfinnur, Boðorðin níu, Kvetch (Gríman sem sýning ársins 2003), Sporvagninn Girnd, Draugalestin, Belgíska Kongó, Sekt er kennd, Mein Kampf, Söngvaseiður, Gauragangur, Fólkið í kjallaranum og Galdrakarlinn í Oz í Borgarleikhúsinu. Hann var hönnuður og meðhöfundur að Jesú litla sem fékk Grímuna árið 2010 sem sýning ársins og leikrit ársins. Fyrir Íslensku óperuna: Sweeny Todd, Tökin hert og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá Íslensku óperunni, Kabarett hjá Á senunni og Úlfhamssaga hjá Öðru sviði og Hafnarfjarðarleikhúsinu. Meðal verkefna fyrir Þjóðleikhúsið eru Sannar sögur af sálarlífi systra sem hlaut Menningarverðlaun DV, Hægan Elektra, Laufin í Toscana, Lífið þrisvar sinnum, Rakstur og Sælueyjan. Snorri Freyr er fastráðinn leikmyndahöfundur við Borgarleikhúsið.

     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica