Listamenn

Bergur Þór Ingólfsson


    Bergur Þór Ingólfsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands vorið 1995 og var þá ráðinn til Þjóðleikhússins en hefur verið fastráðinn við Borgarleikhúsið frá árinu 2000. Meðal fjölmargra hlutverka sem Bergur hefur leikið eru Sörensen rakari í Kardemommubænum, Haukur í Grandavegi 7, Heródes í Jesus Christ Superstar, Tarzan í Gretti, Hitler í Mein Kampf, Dante í Dauðasyndunum, kennarinn í Gauragangi og ýmis hlutverk í Jesú litla. Bergur hlaut Grímuverðlaun fyrir hlutverk skólameistarans í Milljarðamærin snýr aftur árið 2009. Hann hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Stelpurnar og Venni Páer - og kvikmyndinni Órói. Bergur er einn af stofnendum GRAL-leikhópsins í Grindavík, þar sem hann hefur bæði skrifað og leikstýrt, meðal annars Horn á höfði sem fékk Grímuverðlaun fyrir barnasýningu ársins 2010 en það sama ár hlaut hann einnig verðlaun fyrir Jesú litla, ásamt félögum sínum í Borgarleikhúsinu, bæði fyrir sýningu ársins og handrit ársins.  Bergur hefur leikstýrt Kristnihaldi undir jökli, Móglí og Galdrakarlinn í Oz hjá Borgarleikhúsinu.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Jesús litli Leikarar
    Dauðasyndirnar Höfundur
    Dauðasyndirnar Leikarar
    Góðir íslendingar Leikarar
    Söngvaseiður Leikarar
    Gauragangur Leikarar
    Milljarðamærin snýr aftur Leikarar
    Vestrið Leikarar
    Horn á höfði Höfundur
    Horn á höfði Leikstjórn
    Enron Leikarar
    Nei, ráðherra! Leikarar
    Galdrakarlinn í Oz Þýðing
    Galdrakarlinn í Oz Leikstjórn
    Eldhaf Leikarar
    Hótel Volkswagen Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica