Beint í leiðarkerfi vefsins.
Thorbjörn Knudsen er hljóðmaður og hljóðhönnuður við Borgarleikhúsið. Hann hefur unnið með fjölda danskra tónlistarmanna, í hljóðveri og á tónleikum. Meðal þeirra má nefna Mads Vinding, Carsten Dahl, DR Big Band og Caroline Henderson. Thorbjörn hannaði hljóðmynd fyrir Faust, Gauragang, Enron, Strýhærði Pétur og Galdrakarlinn í Oz á Stóra sviði Borgarleikhússins og hlaut tilnefningu til Grímunnar fyrir Faust. Hann hefur einnig unnið sem hljóðmaður við hin ýmsu hljóðver í Danmörku, var meðal annars fastur starfsmaður hjá Full Moon hljóðverinu í Kaupmannahöfn og hljóðmaður í Copenhagen Jazzhouse. Á Íslandi hefur Thorbjörn unnið fyrir hina ýmsu listamenn, bæði hjá Exton og sömuleiðis á eigin vegum en hann rekur sjálfur lítið hljóðver.
| Söngvaseiður | Hljóð | |
| Faust | Hljóðmynd | |
| Gauragangur | Hljóð | |
| Enron | Hljóð | |
| Strýhærði Pétur | Hljóð | |
| Galdrakarlinn í Oz | Hljóð |