Beint í leiðarkerfi vefsins.
Björn Bergsteinn Guðmundsson hefur lýst fjölda sýninga í atvinnuleikhúsum landsins auk þess sem hann starfaði eitt ár við Konunglea leikhúsið í Kaupmannahöfn. Meðal sýninga sem Björn hefur lýst eru Brúðuheimilið, RENT, Krítarhringurinn í Kákasus, Hægan, Elektra, Kirsuberjagarðurinn, Blái hnötturinn, Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, Cyrano frá Bergerac, Veislan, Með fullri reisn, Rauða spjaldið, Jón Gabríel Borkmann, Þetta er allt að koma, Edith Piaf, Nítjánhundruð, Öxin og jörðin og Leg í Þjóðleikhúsinu. Hann hefur unnið lýsingu margra sýninga Hafnarfjarðarleikhússins, Íslensku óperunnar og ýmissa leikhópa. Meðal sýninga sem Björn lýsti fyrir Leikfélag Akureyrar eru Eldað með Elvis, Pakkið á móti, Maríubjallan, Herra Kolbert, Óvitar og Ökutímar. Hann lýsti m.a. Fólkið í blokkinni og Milljarðamærin snýr aftur á Stóra sviði Borgarleikhússins síðast liðinn vetur. Björn hefur hlotið fjölda viðurkenninga, m.a. hefur hann hlotið Grímuna fyrir vinnu sína. Björn er nú yfirljósahönnuður í Borgarleikhúsinu.
| Djúpið | Lýsing | |
| Rautt brennur fyrir | Lýsing | |
| Heima er best | Lýsing | |
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Lýsing | |
| Gauragangur | Lýsing | |
| Milljarðamærin snýr aftur | Lýsing | |
| Fólkið í blokkinni | Lýsing | |
| Ökutímar | Lýsing | |
| Ofviðrið | Lýsing | |
| Fólkið í kjallaranum | Lýsing | |
| Strýhærði Pétur | Lýsing | |
| Nei, ráðherra! | Lýsing |