Beint í leiðarkerfi vefsins.
Örn Árnason lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982 og var fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið í mörg ár en hefur á síðustu árum verið sjálfstætt starfandi leikari, framleiðandi, leikstjóri og höfundur. Í Þjóðleikhúsinu lék hann mörg hlutverk eins og Lilla í Dýrunum í Hálsaskógi, Jónatan og Jesper í Kardemommubænum, Max í Hallæristenórinn, Leikarann í Gamansama Harmleiknum, Geir Vídalín í Gleðispilinu auk fjölda annara hlutverka. Örn lék svo í Harry og Heimi á Litla sviði Borgarleikhússins. Hann hefur einnig talsett fjölda teiknimynda bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndahús auk þess sem hann var einn stofnenda talsetningarfyrirtækisins Hljóðsetning. Örn hefur unnið við sjónvarpsþáttagerð um margra ára skeið og má þar nefna þættina um Afa, Imbakassann og hina sívinsælu Spaugstofu.
| Harry & Heimir | Höfundur | |
| Harry & Heimir | Leikstjórn | |
| Harry & Heimir | Leikarar | |
| Gauragangur | Leikarar |