Listamenn

Ólafur Örn Thoroddsen


    Ólafur Örn Thoroddsen lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands 1976 og lék hjá Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur áður en hann gerðist tæknistjóri Leiklistarskóla Íslands árið 1981. Þar var hann hljóð- og ljósahönnuður og hefur auk þess lýst áhugamannasýningar . Hann var tæknistjóri leikflokksins Bandamenn á leikferð um heiminn og lýsti m .a . Bandamannasögu. Ólafur hefur verið fastráðinn hljóðhönnuður við Borgarleikhúsið frá opnun þess og unnið við fjölda sýninga, m.a. Einhver í dyrunum, Öndvegiskonur, Boðorðin 9, Híbýli vindanna, Woyzeck, Ófagra veröld, Amadeus og Dauðasyndirnar.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Harry & Heimir Hljóð
    Fólkið í kjallaranum Hljóð
    Elsku barn Hljóð
    Elsku barn Hljóð
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica