Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hilmar Örn Hilmarsson hefur verið mikilvirkt tónskáld fyrir kvikmyndir, sjónvarp og leikhús. Hann hefur líka fengist við upptökustjórn á hljómplötum þegar sá gállinn er á honum, allt frá dauðarokksveitum á unglingsaldri til gamalla blúsjöfra á borð við Pinetop Perkins. Hann hefur starfað með Friðrik Þór Friðrikssyni að öllum leiknum myndum hans og auk þess samið tónlist við dönsku myndirnar Sekten (1997) og Vildspor (1998) sem og I wonder who´s kissing you now (1998) og Bye Bye Blue Bird (1999).
| Djúpið | Tónlist |