Beint í leiðarkerfi vefsins.
Börkur Jónsson útskrifaðist úr Skúlptúrdeild MHÍ árið 1999. Þremur árum síðar lauk hann við MA gráðu frá Time and Space Department Listaakademíunnar í Helsinki. Börkur er vídeólistamaður og hafa verk hans verið sýnd víða um Evrópu. Hann hefur komið að ýmsum verkefnum í leikhúsi og gerði m.a. leikmyndirnar fyrir Sjeikspír einsog hann leggur sig í Iðnó, Meistarann og Margarítu í Hafnarfjarðarleikhúsinu og Rómeó og Júlíu sem sýnt hefur verið hér í húsinu og í London. Hann teiknaði leikmyndina fyrir Brim eftir Jón Atla Jónasson ásamt Hlyni Kristjánssyni. Börkur starfar auk þess að auglýsinga- og kvikmyndagerð. Hann mun gera leikmyndina fyrir Terrorisma, sem sýndur verður á Nýja sviðinu í mars 2005.
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Leikmynd | |
| Rústað | Leikmynd | |
| Rústað | Búningar | |
| Rómeó og Júlia | Leikmynd | |
| Enron | Leikmynd |