Listamenn

Jakob Tryggvason


    Jakob Tryggvason hefur unnið sem hljóðhönnuður, hljóðmaður og tæknimaður við leikhús, upptökuver og tónleika hér heima og í Bretlandi frá árinu 1992. Hann var fastráðinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 2000 og hefur verið forstöðumaður hljóðdeildar frá árinu 2007. Jakob hefur unnið hljóðmynd við fjölda sýninga svo sem Hið ljósa man, Móglí, Fyrst er að fæðast, And Björk of course . . ., Sumargestir, Maðurinn sem . . ., Grettir, Segðu mér allt, Draumleikur, Ronja Ræningjadóttir, Dagur vonar auk ýmissa danssýninga á vegum Íslenska dansflokksins auk fjölda annarra sýninga stórra og smárra.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) Hljóð
    Rústað Hljóðmynd
    Rómeó og Júlia Hljóð
    Ofviðrið Hljóð
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica