Beint í leiðarkerfi vefsins.
Kristín Eysteinsdóttir lauk meistaragráðu í leikstjórn frá Goldsmiths, University of London árið 2007 en áður hafði hún lokið BA námi í dramatúrgíu frá Árósarháskóla árið 2002. Hún hefur leikstýrt verkunum Vinur minn Heimsendir í Hafnarfjarðarleikhúsinu, Penetreitor sem leikhópurinn Vér Morðingjar setti upp, Gangverkinu hjá Nemendaleikhúsi Listaháskólans, Heddu Gabler og Þeim Ljóta hjá Þjóðleikhúsinu, en fyrir þá síðarnefndu hlaut hún Grímuverðlaunin sem leikstjóri ársins 2008. Hjá Borgarleikhúsinu hefur Kristín leikstýrt sýningunum Rústað, Rautt brennur fyrir, Dúfunum, Fólkinu í kjallaranum og Gyllta drekanum auk þess sem hún leikstýrði Harry og Heimi í félagi við leikara sýningarinnar. Kristín hefur jafnframt leikstýrt við Útvarpsleikhúsið og starfað sem dramatúrg og aðstoðarleikstjóri við fjölda sýninga. Kristín er stundakennari við leiklistardeild Listaháskóla Íslands og er um þessar mundir fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið.
| Rautt brennur fyrir | Leikstjórn | |
| Dúfurnar | Leikstjórn | |
| Rústað | Leikstjórn | |
| Fólkið í kjallaranum | Leikstjórn | |
| Gyllti drekinn | Leikstjórn | |
| Svar við bréfi Helgu | Leikstjórn |