Listamenn

Þröstur Leó Gunnarsson


    Þröstur Leó Gunnarsson lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1985 og var þá ráðinn til starfa hjá Leikfélagi Reykjavíkur, þar sem hann lék fjölda aðalhlutverka. Meðal þeirra eru Hörður í Degi vonar, Aðalsteinn í Kjöti, Tom Joad í Þrúgum reiðinnar og titilhlutverkin í Platonov, Tartuffe og Hamlet. Þröstur hefur leikið í nokkrum kvikmyndum, meðal annars Jón Leifs í Tárum úr steini og föður Nóa í Nóa albínóa, en fyrir það hlutverk hlaut hann Edduverðlaunin 2003. Þröstur hlaut styrk úr Minningarsjóði Frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2009. Hann hefur einnig hlotið Grímuverðlaun fyrir hlutverk sín í Killer Joe og Ökutímum hjá Leikfélagi Akureyrar. Þröstur er nú fastráðinn leikari við Borgarleikhúsið og meðal nýlegra hlutverk hans þar eru Coleman í Vestrinu eina, Fló á skinni, Dinny í Heima er best, Barði í Fólkinu í kjallaranum og líkið í Nei, ráðherra. Einnig leikstýrði Þröstur verkinu Við borgum ekki sem sett var upp á Nýja sviði Borgarleikhússins í samstarfi við Nýja Ísland.

     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica