Beint í leiðarkerfi vefsins.
Frank Þórir Hall lærði tón- og myndlist við The Royal Conservatory og The Royal Academy í Hollandi og útskrifaðist þaðan með MA gráðu árið 2006. Hann hefur einnig lokið BA prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands. Frank hefur unnið tónlist og myndbandsverk fyrir fjölda leikrita, hvort sem er einn sín liðs eða með hljómsveitunum Ske og Skárren ekkert. Meðal verkefna má nefna Óhapp í Þjóðleikhúsinu, Rústað á Nýja sviði Borgarleikhússins, Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu, Kirsuberjagarðurinn hjá Frú Emilíu og NPK hjá Íslenska dansflokknum. Frank var tilnefndur til Grímuverðlauna árið 2008 fyrir tónlist sína í Dubbeldusch hjá Leikfélagi Akureyrar. Frank starfar nú sem listrænn ráðunautur í Borgarleikhúsinu en auk starfa í leikhúsinu hefur Frank einnig fengist við tónlist almennt, hljóðinnsetningar og dagskrárgerð á Rás 2.
| Rautt brennur fyrir | Tónlist | |
| Faust | Tónlistarstjórn | |
| Faust | Hljóðmynd | |
| Milljarðamærin snýr aftur | Tónlist | |
| Rústað | Tónlist | |
| Rústað | Hljóðmynd | |
| Fýsn | Myndband | |
| Fólkið í kjallaranum | Tónlist | |
| Svar við bréfi Helgu | Tónlist |