Listamenn

Sólveig Guðmundsdóttir


    Sólveig Guðmundsdóttir lærði leiklist við The Arts Educational School í London og útskrifaðist árið 2002. Hún er ein af stofnendum Kvenfélagsins Garps og hefur unnið við fjölda leiksýninga m.a. Meistarinn og Margarita, Örlagaeggin, Kaktusmjólk, In Transit, Riddarar hringborðsins - með veskið að vopni. Sólveig lék Dís í Gunnlaðar sögu og Unu í Svörtum fugli og nú síðast trúðinn Rebekku í Bláa gullinu. Hún hefur einnig farið með hlutverk í kvikmyndunum Blóðbönd, Köld slóð og Brim. Þá var hún aðstoðarleikstjóri Rafaels Bianciotto við Dauðasyndirnar - guðdómlegur gleðileikur í Borgarleikhúsinu og við Þrettándakvöld eftir Shakespeare í Þjóðleikhúsinu. Sólveig hefur einnig starfað með GRAL - leikhópnum, sem framkvæmdastjóri við sýninguna 21 manns saknað og sem leikkona í barna-og fjölskylduleikritinu Horn á höfði.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Bláa gullið Leikarar
    Horn á höfði Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica