Listamenn

Víkingur Kristjánsson


    Víkingur Kristjánsson útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands vorið 2001. Hann er einn af stofnendum Vesturports og hefur tekið þátt í mörgum af verkefnum hópsins. Má þar nefna Rómeó og Júlía, Woyzeck, Brim og Ást. Víkingur hefur sem leikari unnið í leikhúsi, leikið í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og fyrir útvarp. Hann hefur auk þess leikstýrt og unnið sem listrænn leiðbeinandi. Víkingur skrifaði leikritið Kringlunni rústað, sem Vesturport setti upp 2004 og söngleikinn Ást, ásamt Gísla Erni Garðarssyni, sem sýnt var í Borgarleikhúsinu árið 2006 og í Lyric Hammersmith leikhúsinu í London 2008.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Bláa gullið Leikarar
    Faust Höfundur
    Faust Leikarar
    Rómeó og Júlia Leikarar
    Húsmóðirin Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica