Listamenn

Björn Hlynur Haraldsson


    Björn Hlynur Haraldsson útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Hann var einn af stofnendum leikhópsins Vesturport og hefur leikið þar meðal annars í Rómeó og Júlíu sem sýnt var í Borgarleikhúsinu, Young Vic Theatre og The Playhouse Theatre í London, í Brimi sem hefur verið sýnt víða, bæði innan lands og utan, og í Woyzeck sem sýnt hefur verið í Barbican leikhúsinu í London, í Borgarleikhúsinu og nú síðast í New York. Björn Hlynur lék í Blóðbrúðkaupi í Almeida Theatre í London. Hann lék einnig í Sölumaður deyr hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Gestinum hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þíbylju og í sýningunni Sumarljós í Þjóðleikhúsinu. Björn Hlynur hefur einnig skrifað og leikstýrt, hann samdi og leikstýrði verkinu Dubbeldusch sem var sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar og leikstýrði Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu. Hann er líka einn handritshöfunda Faust í uppsetningu Borgarleikhúss og Vesturports. Björn Hlynur hefur einnig leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, m.a. Hamrinum og kvikmyndinni Kóngavegur 7.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Faust Höfundur
    Faust Leikarar
    Rómeó og Júlia Leikarar
    Húsmóðirin Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica