Listamenn

Gísli Örn Garðarsson


    Gísli Örn Garðarsson útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Hann er einn af stofnendum leikhópsins Vesturports og hefur tekið þátt í flestum verkefnum hópsins, sem leikari, leikstjóri og/eða framleiðandi. Gísli Örn hefur meðal annars leikið í Rómeó og Júlíu, Brimi og Rambó 7 með Vesturporti en hann leikstýrði einnig fyrstnefnda verkinu sem og uppfærslu hópsins á Woyzeck sem sýnd var í Borgarleikhúsinu og hjá Barbican leikhúsinu í London. Gísli lék eitt af aðalhlutverkunum í kvikmynd Vesturports Börn en þar að auki hefur hann leikið í Bjólfskviðu og Niceland. Gísli lék í A Matter of Life and Death hjá Breska Þjóðleikhúsinu vorið 2007 og er leikstjóri og höfundur söngleiksins Ást sem sýndur var í Borgarleikhúsinu.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Faust Höfundur
    Faust Leikstjórn
    Rómeó og Júlia Leikstjórn
    Rómeó og Júlia Leikarar
    Húsmóðirin Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica