Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nína Dögg Filippusdóttir útskrifaðist úr Leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Síðan hefur hún starfað við leikhús og kvikmyndir hérlendis sem og erlendis. Hún er einn af stofnendum leikhússins Vesturports. Þar hefur hún m.a. leikið í Rómeó og Júlía, Brimi, Woyzek, Hamskiptunum, Kommúninni og Faust. Meðal annarra hlutverka Nínu eru Karen í Englabörnum í Hafnafjarðaleikhúsinu, Stjarna í Rambó 7 og Katrín í Átta konum í Þjóðleikhúsinu. Nína er fastráðin við Borgarleikhúsið og meðal hlutverka þar eru Tita í Kryddlegnum hjörtum, Eva í Púntilla og Matta, Karen í Fjölskyldunni og Imke í Dúfunum. Nína lék einnig Önnu í Don Jon í uppsetningu breska leikhópsins Kneehigh og ferðaðist með þá sýningu um Bretland. Nína hefur leikið í kvikmyndunum Villiljós, Hafið, Börn og Foreldrar, Sveitabrúðkaup og Kóngavegur og sjónvarpsþáttunum Stelpurnar. Nína Dögg var valin Shooting Star 2003, hún hefur verið tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem og Edduverðlaunanna og hlaut styrk úr Minningasjóði Frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2005.
| Dúfurnar | Leikarar | |
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Leikarar | |
| Faust | Höfundur | |
| Faust | Leikarar | |
| Rómeó og Júlia | Leikarar | |
| Elsku barn | Leikarar | |
| Húsmóðirin | Leikarar |