Listamenn

Filippía Elísdóttir


    Filippía Elísdóttir hefur hannað búninga fyrir fjölda leiksýninga hjá flestum leikhúsum landsins. Þeirra á meðal Leitt hún skyldi vera skækja, Meiri gauragang, Engispretturnar og Virkjunina í Þjóðleikhúsinu. Einnig gerði hún búninga fyrir Draum á Jónsmessunótt, Hamlet og Ríkarð þriðja í samstarfi við Vytautas Narbutas og aðstoðaði sama listamann við búninga fyrir Kirsuberjagarðinn. Filippía gerði búninga fyrir söngleikinn Rocky Horror í Loftkastalanum, Hamlet í Odense Teater í Danmörku, Híbýli vindanna, Fjandmann fólksins, Gretti og Boðorðin 9 og Woyzeck í Borgarleikhúsinu. Hún gerði búninga fyrir Sweeney Todd, Flagarann, Brootnámið og La Traviata í Íslensku óperunni. Hún hannaði einnig leikmynd og búninga fyrir Svartan kött hjá LA, Líkamlega leikhúsverkið Open Source fyrir My pocket production og Íslenska dansflokkinn. Killer Joe fyrir Leikhúsið Skámána. Meðal síðustu verkefna Filippíu eru búningar fyrir Fólkið í blokkinni og Milljarðamærin snýr aftur á Stóra sviði Borgarleikhússins, Velkomin heim hjá ÍD og einleikinn Ég heiti Rachel Corrie á Litla sviði Borgarleikhússins. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir Sweeney Todd, Virkjunina og Woyzeck.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Faust Búningar
    Gauragangur Búningar
    Milljarðamærin snýr aftur Búningar
    Fólkið í blokkinni Búningar
    Ökutímar Leikmynd
    Ökutímar Búningar
    Ég heiti Rachel Corrie Leikmynd
    Ég heiti Rachel Corrie Búningar
    Ofviðrið Búningar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica