Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þórunn Erna Clausen lærði leiklist við Webber Douglas Academy í London og útskrifaðist þaðan árið 2001. Hún hefur m.a. leikið Rauðhettu í Hafnarfjarðarleikhúsinu, Dóru í Lykli um hálsinn í Vesturporti, í einleiknum Ferðir Guðríðar í Skemmtihúsinu bæði á ensku og þýsku, í söng- og spunasýningunni Le Sing á Broadway sem er nú að ljúka sínu sjöunda leikári, Sue í Dýrlingagenginu sem sett var upp í Listasafni Reykjavíkur og Nansí í söngleiknum Ólíver hjá Leikfélagi Akureyrar. Fyrir leik sinn í Dýrlingagenginu hlaut hún tilnefningu til Grímunnar 2003 sem leikkona ársins í aukahlutverki. Hún hefur einnig leikið í kvikmyndinni Dís og í sjónvarpsþáttunum Reykjavíkurnætur og var hún tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir bæði hlutverkin, 2004 fyrir aukahlutverk í Dís og 2005 fyrir aðalhlutverk í Reykjavíkurnóttum. Af öðrum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum má nefna Mannaveiðar, Maður eins og ég, Going up, Fjölskylda ofl. Þórunn Erna hefur lengst af starfað við Þjóðleikhúsið og m.a. leikið þar í Syngjandi í rigningunni, Ragnheiði Birnu í Þetta er allt að koma, Reyndar í Leitinni að jólunum, í Virkjuninni, Sælueyjunni, móðurina í Sitji guðs englar, bangsann í Góðu kvöldi og Tínu í Konan áður. Þórunn Erna leikur nú í fyrsta sinn hér í Borgarleikhúsinu.
| Söngvaseiður | Leikarar |