Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ilmur Kristjánsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2003. Fyrsta hlutverk hennar að lokinni útskrift var titilhlutverkið í Línu langsokk í Borgarleikhúsinu. Meðal annarra verkefna hennar þar má nefna Ófögru veröld, Chicago, Púntila og Matta, Sekt er kennd, Terrorisma og Ræðismannsskrifstofuna. Ilmur lék einnig í Ívanov í Þjóðleikhúsinu. Ilmur var tilnefnd til Grímunnar fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Ausu í samnefndu leikriti árið 2005. Ilmur er ein af leikkonum og handritshöfundum gamanþáttanna Stelpurnar og Ástríður og hlaut titilinn besta leikkona í aðalhlutverki fyrir Stelpurnar á Eddu-hátíðinni 2005.
| Bláa gullið | Leikarar | |
| Fólkið í kjallaranum | Leikarar |