Leikhústöfrar fyrir börn á öllum aldri
Einn Gói, þrjár baunir og
margfaldur Þröstur
Gói og Þröstur Leó opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Fyrst kom ævintýrið um Eldfærin (2011) - nú er komið að Góa og Baunagrasinu.
Gói er sendur af móður sinni á markaðinn til að selja Skjöldu gömlu sem er eina mjólkurkýrin þeirra. Gói á langan veg fyrir höndum og áður en á leiðarenda er komið tekur ferðalagið óvænta stefnu þar sem þrjár töfrabaunir koma við sögu. Upp spinnst spennandi ævintýri með skemmtilegri tónlist, söng, dans og leikhúsbrellum. Risinn, hænan sem verpir gulleggjum, sjálfspilandi harpan og allir þorpsbúar mæta til leiks á litla sviði Borgarleikhússins.
Ævintýrið um Baunagrasið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í febrúar 2012. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda meðal ungu kynslóðarinnar og ekki síst meðal þeirra fullorðnu sem kunna vel að meta hnyttin húmor og spuna þeirra félaga.
Gói og Baunagrasið var eitt meðal þriggja verka sem hlaut tilnefningu til Grímunnar árið 2012 sem barnasýning ársins. Hér er á ferðinni bráðskemmtileg leiksýning fyrir alla fjölskylduna.
Umsagnir
Þeir Gói og Þröstur segja söguna eins og þeim einum er lagið með leiftrandi húmor og hnyttnum orðatiltækjum – I.Þ. Hugrás, HÍ.
Þetta gamla ævintýri segja þeir Gói og Þröstur nú á Litla sviði Borgarleikhússins við mikla ánægju ungra leikhúsgesta. – S.A. TMM.
„Ég gat hlegið endalaust á þessari sýningu“ – M.K. Djöflaeyjan, RÚV.
Lögin í leikritinu eru einstaklega skemmtileg og ýmsir frasar koma fram sem við "fullorðna" fólkið skiljum og veltumst um af hlátri yfir – 5 stjörnur af 5 mögulegum ***** – R.J.G. Landspósturinn.