Gulleyjan


Sjóræningjarnir hafa tekið yfir Borgarleikhúsið!

Ævintýralegasta fjársjóðsleit

allra tíma

Gamall sjóræningi gefur upp öndina á sveitakránni. Fyrr en varir er Jim, hinn ungi sonur kráareigandans, kominn á skipsfjöl á leið í Suðurhöf með skuggalegri áhöfn. Þar á meðal er skipskokkurinn Langi-Jón Silfur sem er ekki allur þar sem hann er séður! Ein ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma er hafin!

Gulleyjan er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum og kostulegum persónum. Sigurður Sigurjónsson leikstýrir fríðum hópi leikara og skrifaði hann handritið ásamt Karli Ágústi Úlfssyni. Þá var hin grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar tilnefnd til Grímuverðlaunanna í vor.

Þetta samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar sló rækilega í gegn í fyrra og var sýnt hátt í fimmtíu sinnum fyrir fullu húsi norðan heiða. Nú verður þetta bráðfjöruga ævintýri fyrir alla fjölskylduna frumsýnt í höfuðborginni – enn stærra og glæsilegra!

Gulleyjan

„Hér er vel að verki staðið. Þrusukraftur í þessu og gríðarlegt stuð frá upphafi til enda"

- JVJ, DV

Lengd
2 klst, eitt hlé

Frumsýning
14. september 2012

Svið
Stóra svið

Tegund
Fjölskyldusýning

Verð
3.750