Supercalifragilisticexpialidocious!
Einn vinsælasti söngleikur heims
– nú loksins á Íslandi
Allt getur gerst í söngleiknum um Mary Poppins – ef þú leyfir því að gerast! Hér er ekkert venjulegt leikverk á ferðinni; sagan er leiftrandi og sjónarspilinu eru engin takmörk sett. Áhorfendur fylgjast með Mary Poppins lífga upp á heimilislífið í Kirsutrjárunni, breyta grárri Lundúnaborg í litríkt ævintýri þar sem sótarar dansa upp um veggi og loft. Tónlistina þekkja allir og hún birtist hér í nýjum heillandi útsetningum. Dansatriðin í Mary Poppins eru stórglæsileg enda gengur Íslenski dansflokkurinn til liðs við listamenn Borgarleikhússins í þessari stórsýningu.
Kvikmyndin um Mary Poppins sló rækilega í gegn um allan heim þegar hún var frumsýnd árið 1964 með Julie Andrews í aðalhlutverkinu. Myndin fékk fimm Óskarsverðlaun og er löngu orðin sígild. Það var svo árið 2004 að loks var gerður söngleikur. Hann fékk hreint ótrúlegar viðtökur þegar hann var frumsýndur á West End; hlaut sjö Tony verðlaun, m.a. sem besti söngleikurinn. Síðan hefur Mary Poppins farið sigurför um heiminn og notið mikilla vinsælda. Söngleikurinn um Mary Poppins hefur aldrei áður verið sýndur á Íslandi og ljóst að margir bíða spenntir eftir því að kynnast konunni sem kann að gera lífið ögn skemmtilegra.
Mary Poppins er sýnd í samstarfi við Íslenska dansflokkinn og dansarar í sýningunni eru á vegum flokksins.
Næstu sýningar
-
06.sep.
-
07.sep.
-
08.sep.
-
12.sep.
-
13.sep.
-
14.sep.
-
15.sep.
-
19.sep.
-
20.sep.
-
21.sep.
Leikarar
Söngur, dans og leikur
Dansarar
Hljómsveit