Nóttin nærist á deginum


Nýtt verk eftir Jón Atla Jónasson

„Bara einu sinni þá vil ég vakna

án þess að vita hvernig dagurinn endar“

Hjón á fimmtugsaldri standa allslaus og ein eftir hrunið. Þau búa í hálfkláruðu einbýlishúsi með kjallaraíbúð sem var ætluð dóttur þeirra þegar hún kæmi heim úr sérnáminu. En hún er ekki á leiðinni heim. Eiginmaðurinn ákveður að gera allt sem í hans valdi stendur til að halda í drauminn um það sem átti að verða. En það hafa ekki allir kjarkinn til þess að byrja upp á nýtt.

Jón Atli Jónasson (1972) er eitt helsta leikskáld þjóðarinnar og starfar nú sem eitt leikskálda Borgarleikhússins. Verk hans fjalla um íslenskan samtíma og íslensku þjóðina. Þau hafa verið sett upp víða um heim og tvö þeirra, Brim og Djúpið, hafa verið kvikmynduð. Á síðustu árum hefur Jón Atli sett upp þrjú verk fyrir Borgarleikhúsið, Þú ert hér, Góðir Íslendingar og Zombíljóðin í samstarfi við félaga sína Jón Pál Eyjólfsson og Hall Ingólfsson. Jón hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Nú síðast hlaut hann Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin og Grímuverðlaunin fyrir besta útvarpsverkið.

Nóttin nærist á deginum

„Eitt og eitt munu ljósin í húsunum líka hverfa, og þú stendur einn í faðmi nýrrar nætur..."

- úr Nóttin nærist á deginum

Lengd
1 og 1/2 klst. Ekkert hlé

Frumsýning
1. febrúar 2013

Svið
Litla svið

Tegund
Íslenskt nútímaverk

Verð
4.400