Ormstunga


Tungan rekin framan í þjóðararfinn á ný

Íslendingasagan sem

er miklu fyndnari en þú heldur

Gunnlaugs saga er ein af þekktustu Íslendingasögunum, hún er lesin í grunnskólum landsins og ættu því flestir að þekkja efni hennar. Þetta er saga um ástir og afbrýði. Hún rekur sögu skáldsins Gunnlaugs Ormstungu, ástir hans og Helgu hinnar fögru og baráttu hans við keppinaut sinn í ástum, skáldskap og stríði, Hrafn Önundarson. Leiksýningin Ormstunga er nákvæm endursögn Gunnlaugs sögu Ormstungu og þó um leið ærslafull yfirreið um menningarheim Norðurlanda að fornu og nýju.

Hin fjölhæfu Benedikt og Halldóra hafa lengi verið í fararbroddi íslenskra leikara. Benedikt skrifaði Mr. Skallagrímsson sem sló í gegn fyrir nokkrum árum og í sameiningu skrifuðu þau svo Jesú litla ásamt félögum sínum í Borgarleikhúsinu.

Hér gefst leikhúsunnendum tækifæri til að sjá upphafið að þessu öllu saman. Ormstunga var fyrst sett upp í Skemmtihúsinu árið 1996 og sló rækilega í gegn og var sýnd bæði innanlands og utan á árunum 1996–97. Þau hættu fyrir fullu húsi en taka nú upp þráðinn á ný og tvinna saman fornsöguna og samtímann á ótrúlega skemmtilegri kvöldstund.

 

Námskeið hjá Endurmenntun - Ormstunga í Borgarleikhúsinu
Á námskeiðinu hlýða þátttakendur á áhugaverða og skemmtilega fyrirlestra um Gunnlaugs sögu Ormstungu, tilurð verksins, leiklistarlega aðferð og fleira. Námskeiðinu lýkur með lokaæfingu í leikhúsinu og samræðu aðstandenda sýningarinnar og þátttakenda. Miði á lokaæfingu er innifalinn í námskeiðsgjaldi.    


Ormstunga

„Svo er sagt frá Gunnlaugi að hann var snemm- endis bráðger, mikill og sterkur, ljósjarpur á hár og fór allvel, svarteygur og nokkuð nefljótur og skapfelligur í andliti, miðmjór og herðimikill, kominn á sig manna best, hávaðamaður mikill í öllu skaplyndi og framgjarn snemmendis og við allt óvæginn og harður og skáld mikið og heldur níðskár og kallaður Gunnlaugur ormstunga."

- úr Gunnlaugs sögu ormstungu

Lengd
2 klst. Eitt hlé

Frumsýning
Sýningar hefjast 8. febrúar

Svið
Nýja svið

Tegund
Sögulegt verk

Verð
4.400