Framsækið og tilraunakennt sjónarspil
„Ef ekki væri fyrir tímann,
mundi allt gerast í einu“
Albert Einstein
Í Stundarbroti er teygt á tímanum, hann er beygður og afmyndaður með aðferðum leikhússins þar til skynjunin er sprengd í loft upp og skilin eftir í tætlum. Þetta er verk á mörkum vísinda, leikhúss og dans, tilraunakennt og framsækið nútímaleikhús sem hristir duglega upp í skynjun áhorfenda. Í verkinu er tekist á við lúmska spurningu: Hvað er tíminn? Vangaveltur um tímann geta reynst okkur flestum yfirþyrmandi umhugsunarefni því tíminn setur tilveru okkar í samhengi við eitthvað miklu stærra en við náum utan um. Það þarf eitthvað annað en stofudrama til að fást við þetta heillandi hugtak.
Leifur Þór Þorvaldsson útskrifaðist úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands árið 2009, hann fékk leiftrandi umsögn fyrir lokaverkefni sitt Endurómun og var verkið síðar sett upp í Borgarleikhúsinu og Leifur tilnefndur sem danshöfundur ársins það ár. Í Stundarbroti heldur Leifur áfram að vinna og þróa þær hugmyndir sem hann vann með í Endurómun.