Velkomin í Borgarleikhúsið
Ávarp leikhússtjóra í kynningarriti leikársins 2011-2012
Verið velkomin!

Kæru leikhúsgestir
Íslendingar eru sannarlega einstök leikhúsþjóð og flykkjast í leikhús landsins til að sækja sér andlega næringu, kraft og skemmtun. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum og kortagestir hafa aldrei verið fleiri.
Á síðasta leikári var bryddað upp á fjölda nýjunga og sýningar leikhússins vöktu athygli erlendra leikhúsáhugamanna. Enn bættist við rós í hnappagat Vesturports, nánasta samstarfsaðila Borgarleikhússins, þegar hópurinn hlaut hin merku Evrópsku leiklistarverðlaun. Af því tilefni sýndum við Faust í Pétursborg við feikigóðar viðtökur.
Það sem skiptir okkur í Borgarleikhúsinu þó mestu máli eru viðtökur ykkar, áhorfendur góðir. Þegar okkur tekst að snerta og hreyfa við ykkur, þá er markmiðinu náð.
Velkomin í ferðalag!
Framundan er einstaklega fjölbreytt og kraftmikið leikár í með- förum margra fremstu listamanna þjóðarinnar. Við bjóðum ykkur með í spennandi ferðalag, nestuð af meðbyr síðustu ára. Áfangastaðirnir eru fjölbreyttir, því ferðalagið mun flytja okkur um víða veröld, en það þarf enginn að óttast – við rötum aftur heim.
Í vetur skoðum við manneskjuna í samspili þjóðanna en líka manninn í sínu nánasta umhverfi. Við ætlum að segja stórar sögur, spyrja áleitinna spurninga, velta upp nýjum flötum en við ætlum líka að skemmta og gleðja.
Borgarleikhúsið hefur leikárið á Stóra sviðinu með því að frum- sýna einn vinsælasta fjölskyldusöngleik allra tíma, Galdrakarlinn í Oz. Þar er förinni heitið yfir sjálfan regnbogann. Í október frumsýnum við Kirsuberjagarðinn eftir Tsjekhov undir handleiðslu Hilmis Snæs en áhorfendur þekkja vel síðustu uppsetningu hans, Fjölskylduna. Um jólin verður sannkölluð leikhúsveisla þegar Fanný og Alexander rata í fyrsta sinn á svið hér á landi. Leikritið er byggt á kvikmyndinni ástsælu og hefur notið mikilla vinsælda á Norðurlöndum, enda er sagan einstaklega hrífandi og áhrifamikil. Hótel Volkswagen er nýtt leikrit sem Jón Gnarr vann þegar hann var leikskáld Borgarleikhússins, áður en hann hélt til starfa á öðrum vettvangi. Benedikt Erlingsson mun stýra glæstum leikhópi og blása lífi í þetta óborganlega leikrit.
Á Nýja sviðinu bjóðum við upp á take-away kómedíuna Gyllta drekann. Ólíkar sögur fólks tvinnast saman á óvæntan hátt og flytja okkur alla leið til Kína. Eldhaf eftir líbanska höfundinn Mouawad er kraftmikið leikverk sem hlotið hefur fjölda verðlauna og verið sett upp í yfir eitt hundrað uppfærslum um allan heim. Næsta vor færist sögusviðið svo aftur heim í heiðardalinn, því þá lifnar hin rómaða skáldsaga Bergsveins Birgissonar Svar við bréfi Helgu við á sviðinu. Eins og lesendur þekkja er hér sögð heillandi saga af því sem aldrei varð. Aðstandendur sýningarinnar eru þeir sömu og settu Fólkið í kjallaranum á svið en sú sýning er ein vinsælla sýninga sem rata á svið frá fyrra leikári.
Á Litla sviðinu er af nógu að taka. Zombíljóðin er nýtt verk rifið beint úr íslenskum veruleika. Það kemur úr smiðju þeirra sem stóðu að Þú ert hér og Góðum Íslendingum og því líklegt að þar verði stungið á kýlum. Í Axlar-Birni er sögð saga eins kaldrifjað- asta morðingja Íslandssögunnar. Gói og Þröstur takast áfram á við ævintýri fyrir börn á öllum aldri. Í vetur setja þeir á svið Baunagrasið og nýta til þess öll meðul leikhússins. Fá verk hafa haft viðlíka áhrif á leikhús síðustu áratuga og Beðið eftir Godot. Nú eru það sannkallaðir pörupiltar sem handleika þetta merka verk. Nóttin nærist á deginum er nístandi nýtt leikrit eftir Jón Atla Jónasson, en Djúpið vakti mikla hrifningu i fyrra.
Undir lok leikársins forsýna Borgarleikhúsið og Vesturport í samstarfi við tvö erlend leikhús nýtt leikrit byggt á Karamazov- bræðrunum eftir Dostojevskíj í leikstjórn Gísla Arnar Garðars- sonar. Sýningin mun svo ferðast um Evrópu en að endingu verða heimsfrumsýnd í Borgarleikhúsinu í lok ársins 2012.
Ellefu þúsund Íslendingar eru kortagestir Borgarleikhússins. Þeir vita að besta leiðin til að tryggja sér öruggt sæti í leikhúsið er með áskriftarkorti. Sem fyrr bjóðum við upp á kort á sérstökum kostakjörum fyrir unga fólkið.
Ég hvet þig til að slást í hópinn og upplifa leikhústöfrana. Komdu með í ferðalag – um víða veröld – og aftur heim.
Velkomin í Borgarleikhúsið
Magnús Geir Þórðarson,
Leikhússtjóri Borgarleikhússins
