Deildir

Deildir

Deildir Borgarleikhússins

Yfirstjórn

Yfirstjórn ber ábyrgð á og hefur umsjón með rekstri Borgarleikhúss á öllum sviðum, það er stefnumótun, fjármálum, skipulagsmálum, starfsmannamálum, kynningarmálum og sölu- og markaðsmálum. Einnig mótar yfirstjórn listræna stefnu  leikhússins og sér um eftirfylgni hennar. Yfirstjórn sér um að útfæra áætlanir, hrinda þeim í framkvæmd og fylgja þeim eftir. Í yfirstjórn eru leikhússtjóri, framkvæmdastjóri, leiklistar- og listrænn ráðunautur og markaðsstjóri.

Markaðsdeild                                                                                                                                          

Allt kynningarstarf Borgarleikhúss er unnið í markaðsdeild auk markaðssetningar leiksýninga og uppbygging jákvæðrar ímyndar leikhússins. Markaðsdeild hefur umsjón með sölumálum leikhússins.

Sýningastjórar

Sýningarstjórar skipta með sér uppsetningum og hver ber ábyrgð á tiltekinni uppsetningu. Sýningastjóri sér um skipulag og hefur yfirsýn yfir vinnu allra þeirra sem koma að gerð leiksýningar, það er undirbúningi, æfingar og sýningar. Auk þess tryggir hann greið samskipti milli allra sem koma að sýningunni á einn eða annan hátt.  

Leiksvið

Fólkið í blokkinni bak við tjöldin

Í Borgarleikhúsinu eru þrjú svið, Stóra sviðið, Nýja sviðið og Litla sviðið. Sviðin eru ólík bæði að stærð og eiginleikum. Starfsfólk leiksviðs setur m.a. upp leikmyndir og sér um skiptingar á milli sýningu og meðan á sýningum stendur. Auk þess fer sviðsdeild með öryggismál og sér um viðhald búnaðar á sviðunum.  Starfsmenn sviðsdeilda ganga auk þess í mörg verk innanhúss.

Ljósadeild

Fólkið í blokkinni bak við tjöldin

Í ljósadeild starfa bæði ljósamenn og ljósahönnuðir.  Þeir sjá um lýsingu á leiksýningum, bæði hina listrænu vinnu og tæknilegu útfærslu hennar. Ljósahönnuður vinnur með leikmyndahönnuði og leikstjóra og útfærir þeirra óskir. Ljósamaður framkvæmir svo það sem ljósahönnuður hefur ákveðið og kappkostar að verða við öllum óskum listrænna stjórnenda.

Hljóð- og tölvudeild

Fólkið í blokkinni bak við tjöldin

Hljóðmenn geta verið bæði hljóðhönnuðir og hljóðmenn fyrir sýningar auk þess að sjá um almennt hljóðkerfi Borgarleikhússins.  Einn starfsmaður hljóðdeildar sér auk þess um allt tölvukerfi hússins, símkerfi og lausn vandamála er upp geta komið.

Búningadeild

Í búningadeild er haldið utan um alla búninga fyrir leiksýningar. Starfsemin er mjög fjölbreytt en auk þess að sníða og sauma þarf oft að lita og meðhöndla flíkur og efni á ýmsan hátt. Stór hluti vinnunnar felst í að finna til flíkur og breyta. Búningahönnuðir eru ráðnir að hverri sýningu en búningadeild vinnur með þeim með það að markmiði að láta hugmyndir listrænna stjórnenda verð að veruleika. Einnig þarf oft að útvega aukahluti sem samræmast því tímabili sem verið er að vinna með. Sérstakt búningasafn er í umsjá búningadeildar. Þá sér búningadeild um viðhald og þvott búninga á sýningartíma.

Leikgervadeild

Leikgervadeild vinnur leikgervi fyrir leiksýningar. Leikgervi eru aukahlutir sem eru settir á leikara fyrir sýningar, til dæmis hárkollur og skegg en einnig hefðbundin andlits- eða líkamsmálning. Algengast er að leikgervahönnuðir sýninga hússins séu starfsmenn deildarinnar en í undantekningartilfellum geta hönnuðir verið lausráðnir.   

Leikmunadeild

Leikmunadeild sér um að útvega leikmuni fyrir leiksýningar og að útbúa nýja leikmuni sem oft eru mjög sérhæfðir. Þá sér deildin um utanumhald og rekstur leikmuna á sýningartíma.  Borgarleikhúsið á stórt leikmunasafn sem er staðsett í Kópavogi auk leikmunageymslna í Borgarleikhúsinu sjálfu. Leikmunaverkstæðið er á jarðhæð leikhússins, norðanmegin.  Auk þess sér leikmunadeild um að útvega tilskilin leyfi ef leikmunurinn er þess efnis, til dæmis byssa. Á sýningartíma ber leikmunavörður ábyrgð á að allir leikmunir séu tiltækir á réttum stað á réttum tíma í því ástandi sem ákveðið hefur verið.

Smíðaverkstæði

Smíðaverkstæði smíðar leikmyndir sem notaðar eru í leiksýningum. Unnið er eftir teikningum og módelum leikmyndahöfunda. Á smíðaverkstæði er aðstaða til að smíða leikmyndir í stórum einingum en verkstæðið allt er hið fullkomnasta hérlendis. Í Borgarleikhúsinu er öflug lyfta til að mála stór leiktjöld, þar er járnsmíðaverkstæði, trésmíðaverkstæði, málarasalur, sprautuklefi ofl. Borgarleikhúsið smíðar flestar sínar leikmyndir en stundum eru fengnir inn lausráðnir menn eða aðstoð keypt frá verktökum, gjarnan frá Sviðsmyndum ehf.

Miðasala og framhús

Miðasala og framhús er andlit Borgarleikhússins út á við. Borgarleikhúsið leggur áherslu á að öll leikhúsupplifunin sé hin ánægjulegasta, allt frá fyrsta símtali við miðasölu og þar til gesturinn kveður leikhúsið að sýningu lokinni. Starfsfólk í framhúsi sinnir miðasölu, dyravörslu, sætavísun, afgreiðslu í veitingasölu og hefur umsjón með öllum rýmum sem leikhúsgestir ganga um. Borgarleikhúsið rekur sjálft veitingasölu í forsal þar sem gestir geta keypt veitingar fyrir sýningu og í hléi. Einnig er hópum boðið upp á að kaupa mat fyrir sýningar.

Eldhús og ræstingar

Í Borgarleikhúsi er starfrækt eldhús sem sér um matseld fyrir starfsfólk og gesti í hádeginu. Auk þess sjá starfsmenn þess um veislur sem haldnar eru í tengslum við starfsemi leikhússins. Maturinn sem boðið er upp á er fjölbreyttur og hollur. Borgarleikhúsið leggur mikla áherslu á snyrtileika og góða umgengni. Þrif eru stór hluti af því. Við ræstingar starfar starfsfólk sem skiptir með sér húsnæði Borgarleikhússins og hefur umsjón með ólíkum svæðum innan þess en deildarstjórar bera ábyrgð á umgengni um rými sem tilheyra hverri deild.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica