Húsnæði og tækni
Upplýsingar um húsnæðið og tæknimál
Sviðin:
Í Borgarleikhúsinu eru þrjú svið auk óhefðbundnari rýma sem stundum er leikið í. Stóra sviðið er stórt og vel tækjum búið. Þar eru stór hliðarsvið og baksvið auk flugturns og hringsviðs. Járntjald aðskilur svið og sal og gegnir brunavörnum. Á hliðarsviðum fer fram sviðsstjórn, skiptingar, umsjón með leikmunum og fleira. Aftast í salnum eru stjórnklefar fyrir ljós og hljóð. Litla sviðið er hringleikhús með svölum en nýjasta sviðið, Nýja sviðið er svartur kassi sem hægt er að snúa á ólíka vegu.
Framhús:
Þau svæði sem gestir hafa aðgang að flokkast undir framhús. Þar er miðasala hússins, veitingasala, áhorfendasalir fyrir sviðin þrjú, snyrting og stórt rými fyrir gesti fyrir sýningu og í hléi.
Vinnurými að tjaldabaki:
Almenningur
Segja má að miðpunktur baksviðsaðstöðunnar sé almenningur. Hugmyndin að almenningnum er sótt í gömlu Iðnó þar sem leikarar komu saman í herbergi sem tengdi saman búningsherbergi leikara. Nafnið almenningur vísar í almenning í réttum í sveitum landsins. Leikarar fá úthlutað búningsherbergjum þar sem þeir geyma persónulega muni og skipta um búninga. Úr almenningi er einnig gengið inn í gervadeild en þar eru leikara farðaðir og greiddir. Í almenningi er aðstaða fyrir leikara og annað starfsfólk til að bíða milli atriða, fá sér kaffisopa og spjalla.
Verkstæði og önnur rými
Meðal þess sem er að finna að tjaldabaki í Borgarleikhúsinu er æfingasalir, leikmunaverkstæði, leikmyndasmíðaverkstæði, trésmíðaverkstæði, járnsmíðaverkstæði, leikmunageymsla, málarasalur, sprautuklefar, hljóðver, ljósaverkstæði, saumastofa, búningadeild, mötuneyti, aðstaða til námskeiðahalds, bókasafn, flugturn, líkamsræktaraðstaða, bílakjallari, loftræstisvæði, hljómsveitargryfja, undir-svið auk aðseturs Íslenska dansflokksins og Sönglistar.
Skrifstofusvæði
Skrifstofur eru á fyrstu hæð við hlið móttöku. Þar hafa fasta aðsetu leikhússtjóri, framkvæmdastjóri, listrænir ráðunautar, markaðsstjóri, sýningarstjórar, ljósahönnuðir hússins auk listrænna stjórnenda sýninga eins og rými leyfir. Þar eru einnig fundarherbergi.
