Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á leikárinu 2010-2011 var enn slegið met í kortasölu og aðsókn hefur aldrei verið meiri í Borgarleikhúsið. Stígandinn hefur verið gríðarlegur síðustu þrjú ár, fjöldi kortagesta hefur ríflega tuttugufaldast og áhorfendur eru komnir í 219.000 – það mesta í sögu íslensks leikhúss. Sannarlega ótrúlegar tölur sem hvetja okkur til að halda áfram og gera enn betur.
Í ár hlaut Borgarleikhúsið mun fleiri tilnefningar en leikhús hefur áður hlotið eða 38 tilnefningar. Borgarleikhúsið átti fjórar af fimm tilnefndum sýningum ársins, Fjölskyldan, Faust, Djúpið og Jesús litli en sú síðastnefnda var valin sýning ársins.
Nýliðið leikár, 2008–2009, er það aðsóknarmesta í sögu Borgar leikhússins og um leið í sögu íslensks leikhúss: 207.576 gestir. Það voru fleiri met slegin því sala áskriftar korta ellefu faldaðist milli ára og nýjum ungmennakortum var feikivel tekið. Við þökkum þessar frábæru viðtökur. Þær eru okkur hvatning til að gera enn betur.