Leikárið 10-11
Markverðast á leikárinu
Algjört met!Á leikárinu 2010-2011 var enn slegið met í kortasölu og aðsókn hefur aldrei verið meiri í Borgarleikhúsið. Stígandinn hefur verið gríðarlegur síðustu þrjú ár, fjöldi kortagesta hefur ríflega tuttugufaldast og áhorfendur eru komnir í 219.000 – það mesta í sögu íslensks leikhúss. Sannarlega ótrúlegar tölur sem hvetja okkur til að halda áfram og gera enn betur.
Borgarleikhúsið hittir ÍMARK
Í nóvember síðastliðnum tilkynnti ÍMARK að Borgarleikhúsið hefði verið valið fyrirtæki ársins 2010. Þetta er mikil viðurkenning en aldrei áður hefur menningarfyrirtæki hlotið þessi verðlaun. Í umsögn dómnefndar var vísað til þess árangurs sem náðst hefur á síðustu tveimur árum og að augljóst væri að í Borgarleikhúsinu starfaði einstaklega sterkur og samhentur starfsmannahópur. Að mati dómnefndar er þessi samtakamáttur starfsfólks auk stefnufestu leikhússins aðalástæða þess árangurs sem náðst hefur. Þá var vísað til sögulegs árangurs í aðsókn og kortasölu. ÍMARK eru samtök íslensks markaðsfólks.
Gleðileg Gríma
Íslensku leiklistarverðlaunin, Gríman, eru afhent ár hvert og þar er því hampað sem þótt hefur skara fram úr á liðnu leikári. Sýningar Borgarleikhússins hlutu hvorki fleiri né færri en 33 tilnefningar þetta árið. Tvær sýningar hússins, Fólkið í kjallaranum og Elsku barn voru tilnefndar sem sýningar ársins og áhorfendur tilnefndu fjórar sýningar Borgarleikhússins sýningu ársins, en þær voru Húsmóðirin, Strýhærði Pétur, Eldfærin og Nei, ráðherra sem sigraði í þeim flokki. Fólkið í Kjallaranum hlaut níu tilnefningar og Auði Jónsdóttur og Ólafi Agli Egilssyni hlotnaðist Gríman sem leikskáld ársins fyrir verkið. Elsku barn var einnig áberandi á hátíðinni með alls sjö tilnefningar og Unnur Ösp Stefánsdóttir hreppti Grímuverðlaunin sem leikkona ársins í aðalhlutverki. Báðar þessar sýningar fara aftur á fjalir Borgarleikhússins í haust. Verðlaunin eru mikill heiður en ávallt eru það samt viðtökur áhorfenda sem skipta okkur mestu máli.
Leikarar á rauða dreglinum
Leikarar Borgarleikhússins voru í aðalhlutverki þegar kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Eldfjall var frumsýnd í Cannes í Frakklandi sl. vor. Þar voru á ferð Theodór Júlíusson og Margrét Helga Jóhannsdóttir en Þröstur Leó Gunnarsson og Elma Lísa Gunnarsdóttir eru einnig í stórum hlutverkum í myndinni. Rúnar Rúnarsson er ein bjartasta von Norðurlanda í kvikmyndagerð og hlaut myndin mikið lof á hátíðinni.
Jesús litli heimsækir Spán
Grímusýning ársins 2010, Jesús litli, hefur notið mikilla vinsælda íslenskra leikhúsgesta en hefur nú einnig vakið áhuga leikhúsfólks erlendis. Nokkur boð hafa borist erlendis frá um að flytja sýninguna, en sú fyrsta verður á Spáni í nóvember.
Djúpið heillar
Djúpið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu árið 2009. Sýningin hreyfði við áhorfendum og gagnrýnendur hlóðu
hana lofi. Í kjölfarið hefur sýningin farið í leikferð hér á landi og erlendis. Í framhaldinu gerði Baltasar Kormákur kvikmynd upp úr verkinu en hún verður frumsýnd innan skamms. Verkið hlaut Grímuna sem útvarpsverk ársins og nú á vormánuðum hlaut hún einnig Norrænu útvarpsverðlaunin. Við óskum Jóni Atla og Ingvari til hamingju með árangurinn.
Frávika
Í lok leikársins var starfsemin í Borgarleikhúsinu brotin upp. Í stað þess að vinna hefðbundin störf var efnt til námskeiða fyrir allt starfsfólk leikhússins dagana 23. til 26. maí í þeim tilgangi að rækta okkar frábæra fólk: Trúðanámskeið, lista- og hugmyndasaga, fatabreytingar og við- gerðir, dansnámskeið, jóga, handritanámskeið og „djönkorkestra“. Leiðbeinendur voru allir sérfræðingar á sínu sviði og sóttir út fyrir leikhúsið. Fráviku lauk svo með vel heppnuðum vorfögnuði þar sem dansað var fram á rauða nótt.
Faust á erlendri grundu
Uppsetning Borgarleikhússins og Vesturports á Faust var sýnd í London fyrir fullu húsi í heilan mánuð. Sýnt var sjö sinnum í viku allan október og var sýningin hluti af 40 ára afmælishátíð Young Vic leikhússins sem er í hópi virtustu leikhúsa Bretlands í dag. Síðar var sýningin sýnd í Ludwigshafen í Þýskalandi og Pétursborg í Rússlandi. Inni á milli nutu íslenskir leikhúsgestir sýningarinnar. Framundan eru leikferðir með sýninguna til Suður-Kóreu, Bandaríkjanna og Ástralíu.
Skuggatúlkun á Jesú litla
Í desember var bryddað upp á metnaðarfullri nýjung þegar tvær sýningar á Jesú litla voru sérstaklega túlkaðar fyrir heyrnarskerta. Aðferðin var svonefnd skuggatúlkun þar sem túlkarnir eru hluti sýningarinnar og fylgir túlkur hverjum leikara. Sýningar tókust afar vel og mæltist vel fyrir hjá heyrnarskertum.
4.000 börn sýna hæfileika sína
Mikill fjöldi ungmenna spreytti sig í áheyrnarprufum fyrir söngleikinn Galdrakarlinn í Oz. Tæplega 4.000 krakkar og unglingar mættu til leiks. Þetta var stórt en skemmtilegt átak fyrir unga fólkið og eftir prufur voru 36 þeirra valin til að taka þátt í glæsilegri sýningu sem frumsýnd verður á Stóra sviðinu í september.
Kamban
Málþing um Guðmund Kamban, leikskáld var haldið laugardaginn 29. janúar sl. Þar héldu framsöguerindi þau Hlín Agnarsdóttir, Sveinn Einarsson og Friðgeir Einarsson. Atriði úr verkinu Öræfastjörnur var leiklesið undir stjórn Mörtu Nordal. Síðan voru líflegar pallborðsumræður um skáldið og verk hans. Þetta vel heppnaða málþing er liður í félagsstarfi Leikfélags Reykjavíkur og vænta má fleiri uppákoma af þessu tagi í framtíðinni.
